Sunnudaginn 17. nóvember er minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa.  Af því tilefni verður Guðsþjónusta dagsins í Landakirkju helguð þessu málefni.

Fólk er hvatt til að leiða hugann að fórnfúsu og óeigingjörnu starfi viðbragðsaðila og þeirri ábyrgð sem við öll berum í umferðinni.  Beðið verður sérstaklega fyrir fórnarlömbum umferðarslysa og við munum hlusta á frásögn fulltrúa viðbragðsaðila í guðsþjónustunni.

Kór Landakirkju mun syngja undir stjórn Kitty Kovács og að lokinni Guðsþjónustu býður Slysavarnardeildin Eykyndill uppá kaffi og smákökur í safnaðarheimilinu.