ÍBV tryggði sér á ævintýralegan hátt sæti í 4 liða úrslitum Coca cola bikarsins í gærkvöldi með 24-22 sigri á liði FH í Vestmannaeyjum. Dregið verður í hádeginu þriðjudaginn 11. febrúar og verður drátturinn í beinni útsendingu á facebook síðu HSÍ. Auk ÍBV eru í pottinum karla megin Haukar, Stjarnan og Afturelding. Hjá konunum eru það Haukar, Valur, Fram og KA/Þór sem etja kappi.

Undanúrslitin fara fram í Laugardalshöll 4. mars hjá konunum og þann fimmta hjá körlunum. Úrslitaleikirnir verða svo leiknir laugardaginn 7. mars.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá leiknum í gær: