Af gefnu tilefni viljum við ítreka við alla gesti sem koma á Hraunbúðir að leggja sérstaka áherslu á handhreinsun, sprittun og hreinlæti.

Við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að Kórónaveiran Novel (2019-nCoV) og aðrar smitsóttir berist til okkar því við erum með viðkvæman hóp einstaklinga.  Við viljum líka fylgja ráðleggingum almannavarna að draga úr öllum handaböndum og kossaflensi.  Eins viljum við biðja þá einstaklinga sem dvalið hafa erlendis á þeim svæðum sem kórónaveiran hefur komið upp að forðast heimsóknir á Hraunbúðir þar til gengið hefur verið úr skugga um að þeir beri ekki með sér smit.  Annars bendum við öllum á að fylgjast með og kynna sér leiðbeiningar til almennings inn á www.landlaeknir.is