Vegna tilmæla frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra og Embætti landlæknis fer KSÍ þess á leit við aðildarfélögin að þau sleppi því að heilsast með handabandi fyrir leiki eins og venjan er þangað til annað verður ákveðið. Í stað handabandsins mælist KSÍ með því að liðin stilli sér upp með hefðbundnum hætti og klappi í stutta stund áður en leikur hefst og hlutkesti varpað.

Það er því ljóst að heilsað verður með klappi þegar kvennalið ÍBV mætir ÍA á Akranesi kl. 17:00 í B-riðili Faxaflóamótsins í dag.