Fjöldi smita vegna COVID-19 er nú 69 í Vestmannaeyjum. Þrír til viðbótar greindust með veiruna í dag og voru þeir allir í sóttkví þegar þeir greindust. Frá fyrsta smiti hefur 57% fólks sem hefur greinst með staðfest smit í Vestmannaeyjum þegar verið í sóttkví þegar það greinist. Fjórir hafa náð bata. Fjöldi einstaklinga sem settur hefur verið í sóttkví er 629 og hafa 264 lokið sóttkví.

Fólki sem þarf samtal við Rauða krossinn vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna faraldursins, aðstoð með aðföng eða hvers kyns stuðning er bent á hjálparsíma Rauða krossins 1717. Þar er svarað allan sólarhringinn og hægt að koma skilaboðum til fulltrúa Rauða krossins í Vestmannaeyjum sé þörf á því.

Aðgerðastjórn