Almannavarnanefnd Vestmannaeyja fundaði aftur með forsvarsmönnum HS-veitna síðdegis í dag þar sem farið var yfir þá stöðu sem upp er komin vegna tjóns á neysluvatnslögninni til Eyja.

Fram kom á fundinum að þeir erlendu sérfræðingar sem hafa málið til skoðunar telja sig þurfa fleiri daga til viðbótar til að meta ástand leiðslunnar og möguleikum á viðgerð. Að því loknu verður líklega unnt að gefa formlega út hvernig staðan er á lögninni og hver næstu skref yrðu.

Um leið og nánari upplýsingar liggja fyrir verður boðað til næsta fundar aðila.

Almannavarnanefnd Vestmannaeyja
HS-Veitur