Viðbrögð vegna veiruógnunar voru rædd á fundi fræðsluráðs í síðustu viku. Þar var farið yfir stöðuna í GRV, leikskólunum, tónlistarskóla, frístundaveri og hjá dagforeldrum.

Fræðslufulltrúi lagði fram minnisblað um starfið í fræðslu- og uppeldisgeiranum frá því samkomubann hófst þann 15. mars sl.
Nemendur GRV mættu í skólann í fjórar kennslustundir á dag fyrstu vikuna. Mæting var dræm og vantaði töluvert af nemendum í hvern bekk. Vegna fjölda kennara í sóttkví við lok þeirrar viku var ekki hægt að halda áfram óbreyttu skipulagi og því tekin ákvörðun um fjarkennslu. Börn í forgangi hafa þó mætt í skólann og hefur foreldrum barna í 3. og 4. bekk, sem eru í framlínustörfum, nú verið boðið að sækja um forgang. Fjarkennslan er áætluð til 3. apríl nk. og stefnt á að nemendur mæti í skólann eftir páskaleyfi skv. fyrra fyrirkomulagi.

Á leikskólunum mæta börn annan hvern dag en börn í forgangi fá vistun eftir þörfum. Mæting hefur verið með minnsta móti.
Öll hópkennsla í Tónlistarskóla Vm. var felld niður en einstaklingstímar voru kenndir áfram og færðust að einhverju leyti yfir í fjarkennslu frá 23. mars.
Frístundaver var fært í Hamarsskóla svo skólahópar gætu haldið sér frá skóla í frístund. Örfá börn nýttu þessa þjónustu. Þegar farið var í fjarkennslu var tekin ákvörðun um að frístundaver væri einungis í boði fyrir börn í forgangi en sá hópur var stækkaður frá 30. mars og býðst nú einnig börnum í 3. og 4. bekk.
Þjónusta dagforeldra hefur haldið sér en börnum hjá Kristínu og Söndru er skipt í tvo hópa sem mæta til skiptis.

Viðbragðsaðilar hafa verið upplýstir daglega um þróun mála varðandi skólastarf í sveitarfélaginu en þeir hafa verið í góðu sambandi við aðgerðastjórn almannavarna ríkisins. Allar ákvarðanir um frekari takmörkun eða breytingar á skólahaldi hafa verið teknar í samráði við umdæmislækni sóttvarna.
Starfið hefur gengið vel sem er ekki sjálfgefið þegar svo miklar breytingar eiga sér stað á stuttum tíma. Starfsfólki og foreldrum ber að þakka fyrir jákvæðni, þolinmæði og þrautseigju á þessum erfiðu tímum.

Ráðið þakkar upplýsingarnar og einnig öllum starfsmönnum sviðsins og Vestmannaeyjabæjar fyrir þeirra framlag. Það er ánægjulegt að sjá hvernig starfsfólk sem er í framlínustörfum, þjónustuþegar og allir íbúar mæta erfiðum aðstæðum með velvilja, skilningi, jákvæðni og góðu samstarfi. Ráðið leggur áherslu á að bæjarbúar standi saman og leggi sig fram að halda áfram uppi jákvæðni og bjartsýni á erfiðum tímum. Höfum í huga að við erum öll almannavarnir og hlýðum Víði.