Mjaldrarnir Litla hvít og Litla Grá verða fluttar út í Klettsvík í næstu viku. Nánari dagsetning verður kynnt síðar. Verið er að ganga frá síðustu lausu endunum um ferðatilhögun dýralækna og annara sérfræðinga sem koma að flutningnum.

Audrey Padgett forstöðumaður hjá Sea life trust í Vestmannaeyjum segist þakklát fyrir þann stuðning og áhuga sem samfélagið í Eyjum hefur sýnt verkefninu. „Undirbúningur fyrir þennan flutning hefur staðið yfir lengi og margt sem þarf að huga að. Það er mikilvægt að allt gangi fljótt og vel fyrir sig. Sá hluti leiðarinnar sem við höfum mestar áhyggjur af er kaflinn frá safninu og út í bátinn. Það er mjög mikilvægt að fólk takmarki umferð í kringum svæðið þegar þar að kemur. Við ætlum í staðinn að koma á móts við fólk með því að bjóða í „innflutningspartý“ á útsýnispallinum við Flakkarann þar sem við munum bjóða fólki að þiggja léttar veitingar á meðan það getur fylgst með ferlinu. Einnig verður á svæðinu starfsfólk frá Sea life trust sem mun ræða við gesti og svara spurningum. Við erum ekki að gera þetta til að trekkja fólk að heldur til að bjóða fólki sem vill fylgjast með að gera það frekar þaðan en einhvers staðar annars staðar þar sem mögulega væri hægt að stofna velferð hvalanna, starfsfólks eða annara í hættu.“

Frá æfingu fyrir flutninginn. Mjaldrarnir verða fluttir með Lóðsinum út í Klettsvík.

Audrey áætlar að ferlið allt taki um 3-4 tíma. „Við höfum æft þetta og farið yfir ferlið, flutningur á hvorum hval ætti ekki að taka meira en tvo tíma. Stærsti óvissuþátturinn er í mínum huga hvernig það á eftir að ganga að fá seinni hvalinn til að synda inn í börurnar eftir að hinn er farinn. Þær hafa verið saman alla tíð og erfitt að segja hvernig sú seinni bregst við.“

Gunnlaugur Erlendsson, kafari, fer yfir ferlið með starfsfólki Sea Life Trust.

Hvalirnir verða fluttir úr lauginni í sér útbúnum börum sem hvíla á sérstökum svampi til þæginda fyrir hvalina. Þannig verða þeir fluttir með krana á flutningabíl yfir í krana á lóðsbát hafnarinnar. Eftir að út í Klettsvík er komið verður hvölunum fyrst sleppt í umönnunarlaug. Kvíin er hönnuð með þessum hætti til að auðvelda umönnun dýralækna á hvölunum á meðan aðlögunarferlinu stendur. Framgangur þessa ferlis ræðst af heilsu og velferð hvalanna og því hvernig þeir aðlagast nýjum aðstæðum. Á meðan á þessu stendur verða 24 tíma vaktir úti í kvínni. Þegar hvalirnir hafa lokið þessu ferli verður þeim sleppt endanlega út í kvínna sem spannar 32.000 fermetra og allt að 10 metra á dýpt. Þetta ferli getur tekið allt frá nokkrum vikum og upp í einhverja mánuði.

Audrey biðlar til bátaeigenda að takmarka umferð um hafnarsvæðið á meðan á flutningunum stendur. Einnig segir hún mikilvægt að hvalirnir verði fyrir sem minnstu áreiti þessar fyrstu vikur í ferlinu. „Við biðjum fólk að halda sig fyrir utan ytri bryggjuna okkar úti í Klettsvík. Hvalirnir eiga eftir að upplifa mikið af nýju áreiti úti í Klettsvík og því viljum við reyna að takmarka utanaðkomandi truflun sérstaklega þessar fyrstu vikur.“

Bjóða fólki að senda kveðju
Næstkomandi helgi verður því síðasta helgin sem við ábyrgjumst að hvalirnir verði til sýnis í bili að minnsta kosti. Við ætlum að bjóða fólki sem kemur á safnið um helgina að skrifa til hvalanna skilaboð á stóran borða sem síðan verður hengdur upp á safninu.