Að kvöldi þriðjudagsins 4. ágúst og aðfaranótt miðvikudagsins 5.ágúst fer fram vinna við Rimakotslínu1 í dreifikerfi  Landsnets á Hvolsvelli  og í Rimakoti.  Vegna þessa þarf að rjúfa rafmagn frá landi á bilinu 23:00 á þriðjudagskvöldið til kl. 05:00 aðfaranótt miðvikudags.

Þetta þarf þó ekki að þýða að rafmagnslaust verði í Eyjum því vélar HS Veitna verða notaðar til að framleiða rafmagn. Hugsanlega gæti þó komið til skerðingar á afhendingu rafmagns og eru bæjarbúar beðnir um að draga úr rafmagnsnotkun eins og hægt er.

HS Veitur hf.