Liðin sitja bæði í efri hluta deildarinnar og stefna hærra. Leikurinn hefst 17.30 og eru áhorfendur leyfðir á vellinum eftir nokkuð hlé. Það komast 100 í hvora stúku og svo verður svæði frá stóru stúkunni að SA hornfána einnig opið.
Talið verður í stúkurnar og gæti orðið uppselt í þær. Börn fædd 2005 og síðar telja ekki í sóttvarnaraðgerðum. Leikurinn verður einnig sýndur á ÍBV TV.