KSÍ hefur tekið þá ákvörðun að fresta öllum leikjum til og með 19. október.  Unnið er að því að finna nýja leikdaga á þá leiki sem frestast og verða frekari upplýsingar birtar um leið og unnt er.  Áður hafði leikjum á vegum KSÍ verið frestað um eina viku.  Ákvörðun KSÍ er tekin vegna almannahagsmuna og tilmæla sóttvarnarlæknis. Markmið stjórnar KSÍ um að ljúka keppni samkvæmt mótaskrá stendur enn sem komið er óhögguð þrátt fyrir frestanir leikja.

Því er sem fyrr beint til aðildarfélaga að þau gæti að ítrustu sóttvarnarreglna við æfingar og í allri sinni starfsemi eins og við á.Það er von KSÍ að með samtakamætti og liðsheild megi vinna bug á þeirri bylgju smita sem nú gengur yfir samfélagið.  Tilmæli sóttvarnalæknis og ríkislögreglustjóra varðandi íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu má sjá undir hlekknum hér að neðan:

Tilmæli