Óhapp varð núna fyrir stundu þegar glussaslanga í gröfu sprakk þegar vélin var stödd á Strandvegi til móts við Krónuna. Greiðlega hefur gengið að hreinsa upp þá yfirborðsolíu sem var á götunni með aðstoð sóparabílsins en töluvert hafði borist áfram með umferð m.a. niður á Tangagötu. Segir í tilkynningur frá Slökkvilið Vestmannaeyja.
Svæðið afmarkast að mestu leyti við Strandveg frá Miðstöðinni og að gatnamótum Strandvegs og Heiðarvegs, auk Tangagötu frá Skildingavegi að Skólavegi. þetta svæði verið varasamt í einhvern tíma, og þá sérstaklega gangbrautir, ekki síst fyrir reið- og bifhjólafólk sem á leið þar yfir. Slökkviliðið hvetur fólk til að fara varlega á þessu svæði á næstunni.