37 ára tilraun sem mistókst
30. ágúst, 2021

Langafi minn kom til Eyja í upphafi síðustu aldar og gerðist útgerðamaður. Þá var allt með öðrum brag en í dag og lífsbaráttan hörð en ef maður ber saman fiskveiðar fyrir 100 árum síðan og svo aftur fiskveiðar í dag og sömuleiðis kvótakerfið, þá var veiðifyrirkomulagið mjög einfalt í gamla daga þó aðbúnaður sjómanna hafi verið skelfilegur.

Á þessum tíma fengu menn að fiska eins vel og þeir mögulega gátu og góð vertíð reddaði oft málunum á erfiðum tímum og þó það sé kannski hæpið að líkja þessu saman við þessi öflugu skip sem við höfum í dag.

En það má svo sannarlega bera saman afla og aflabrögð.

Stærsta hluta síðustu aldar voru veidd 4-500 þúsund tonn af þorski ár eftir ár án þess að högg sæi á vatni.

Til samanburðar þá erum við ekki einu sinni hálfdrættingar á við það sem þá var. Fyrir næsta fiskveiðiár er verið að úthluta 220 þúsund tonnum af þorskkvóta.

Hvert fór allur þessi fiskur?

Í dag búum við við afleiðingar tilraunar sem staðið hefur í 37 ár. Tilraunin hefur algjörlega mistekist, en enn er verið að berja höfðinu við steinninn.

Fyrir 37 árum síðan var úthlutað 220 þúsund tonna þorskkvóta og við erum í nákvæmlega sömu stöðu í dag því núna verið að úthluta 220 þúsund tonna af þorskkvóta fyrir næsta filskveiðiár og ef tekið er mið er tekið af nýjustu útreikningum Hafró, þá er enn frekari niðurskurður fyrirsjáanlegur á næstu árum.

Hvert fór allur þessi fiskur?

Þetta er staðan eftir „vísindalega stjórnun“ á fiskveiðum í nær 40 ár.

Er ekki ljóst að eitthvað hafi misfarist og að skoða þurfi útreikninga vísindamannanna sem oftar en ekki eru á skjön við það sem sjómenn, sem eru úti á sjó í tengslum við náttúruna, sjá og skynja.

Þessi staða mála gengur ekki upp og miklir hagsmunir í húfi að rétt sé að verki staðið.

Kvótinn og handfæraveiðar

Ég ætla ekki djúpt í þá umræðu hér, en framsal kvóta er eitt það versta böl sem lagt hefur verið á sjómenn hér á landi. Það ætti engin að eiga kvóta sem ekki ætlar að nýta hann sjálfur. Kvótinn á að fara milliliðalaust til þeirra sem ætla að veiða, þeirra sem leggja í þann kostnað sem útgerð krefst.

Útgerðarmenn eiga að kaupa kvótann fyrir sanngjarnt verð af ríkinu, þannig að þjóðin fái sitt og útgerðarmaðurinn geti vel við unað.

Handfæra- og strandveiðar eiga að sjálfsögðu að vera algjörlega frjálsar enda hafa þær lítil sem engin áhrif á hið stóra samhengi hlutanna á sama tíma og þær geta gert kraftsverk fyrir afkomu sjávarbyggða og sjómanna víða um land.

Þarna á fólkið í landinu að njóta vafans en ekki sérhagsmunir fárra eins og nú er.

Frjálsar handfæraveiðar lykilatriði

Ég verð í 2. sæti á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi og það er ekkert leyndarmál að stefna flokksins í sjávarútvegsmálum réð úrslitum um þá ákvörðun mína að bjóða mig fram.

Félagar mínir í Flokki fólksins eru einhuga um það að berjast fyrir frjálsum handfæraveiðum.

Þetta er lykilatriði í stefnu flokksins og á því verður ekki gefinn neinn afsláttur.

Krafa stórútgerðarinnar um óbreytt fyrirkomulag og í síðustu viku voru strandveiðar illu heilli stoppaðar, enda áhrif stórutgerðarinnar óumdeild og augljós í núverandi ríkisstjórn.

Ég skrifaði í grein í byrjun ársins (trillukarlar í stórsjó) um að með óbreyttri ríkisstjórn verði smábátaveiðar smátt og smátt lagðar af og stend algjörlega við það sem ég sagði þar.

Það hefði verið auðvelt fyrir núverandi ráðherra að bæta aðeins í og auka svigrúmið til handfæraveiða til þess að klára sumarið. Það er staðreynd að þúsundir tonna í hinum ýmsu tegundum eru að brenna inni m.a. ufsi, keila, blálanga, litli karfi, gullax og fleiri tegundir(?) m.a. vegna reglna um tilfærslu, en því verður að breyta.

Auk þess þá vita allir sem vilja vita að frjálsar handfæraveiðar yfir vetrarmánuðina, þar sem veður og vindar stjórna því hversu mikið er hægt að róa myndu aldrei gera annað en að koma í veg fyrir að menn þurfi jafnvel að skrá sig á atvinnuleysisbætur eða leita eftir annari vinnu í því atvinnuleysis ástandi sem hér ríkir um þessar mundir.

Uppsjávarveiðar

Einnig þarf að fara yfir samninga okkar við norðmenn um loðnuveiðar og spurning hvort ekki sé orðið tímabært, vegna óvissu um loðnuveiðar ár eftir ár, að setja á t.d. lágmarksúthlutun til þriggja ára og tryggja þar með útgerðinni, vinnslunni og kaupendum ákveðið öryggi. Einnig er spurning vegna mikils meðafla í formi síldar í makrílveiðunum, hvort ekki væri rétt að síldin sem er afar léleg teldist aðeins til hálfs í kvóta? Lykilatriði er þó að þær veiðar, sem og aðrar, séu með verðmyndun sem er í samræmi við markaðsverð.

Þetta er fullreynt og virkar ekki

Núverandi sjávarútvegsstefna með öllum sínum höftum, kvótum og sérhagsmunum virkar ekki. Það er fullreynt.

Kvótinn minnkar sífellt of afkoma sjómanna hefur farið stöðugt versnandi síðustu ár á meðan stórútgerðir maka krókinn.

Þjóðin hefur verið svikin af auðlindum sínum og þær seldar framhjá henni til órfárra útvaldra sem fitna eins og púkinn á fjósbitanum.

Það er nóg komið!

Hjálpaðu okkur að breyta þessu. Settu X við F.

 

Georg Eiður Arnarson

Höfundur situr í 2. sæti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 16 Tbl 2024
16. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst