Ágætu Eyjamenn.

Í kvöld, miðvikudaginn 10. feb. kl. 20 – 21.30  boðar Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG í Suðurkjördæmi boðar til fjarfundar í kjördæmaviku Alþingis. Fundurinn er fyrst og fremst um samgöngu- og heilbrigðismál með áherslu á Vestmannaeyjar og er öllum opinn þannig að við getum getum á einfaldan hátt tekið þátt í honum heima við tölvuna með hjálp netsins.

Með Ara Trausta   á fundinum verður Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG og fulltrúi í velferðarnefnd Alþingis.

Á fundinum gefst okkur tækifæri til að spyrja þá félagana um ýmis mál sem snerta okkar samfélag og einnig getum við komið skoðunum okkar á framfæri og til umræðu.

Slóðin á fundinn er:

https://zoom.us/j/92581010578?pwd=MTdJSUJnVzB3QU80R2MyWU8wTUVZdz09

 

Sjáumst á netfundi

Ragnar Óskarsson