Það var dregið í bæði sextán liða og átta liða úrslit Coca Cola bikars karla og kvenna í handbolta í dag þar sem leikirnir í þessum tveimur umferðum fara fram á fjórum dögum í apríl. Stelpurnar mæta Gróttu á útivelli í 16 liða úrslitum en strákarnir fara í Mosfellsbæ og etja kappi við Aftureldingu.

Það má sjá alla leikina hér fyrir neðan.

  • Sextán liða úrslit Coca Cola bikars kvenna:
  • ÍR – Haukar
  • Selfoss – FH
  • Grótta – ÍBV
  • Fjölnir/Fylkir – KA/Þór
  • HK – Valur
  • Afturelding – Stjarnan
  • Fram og Víkingur sitja hjá
  • Átta liða úrslit Coca Cola bikars kvenna:
  • Víkingur – Selfoss eða FH
  • Afturelding eða Stjarnan – Fjölnir/Fylkir eða KA/Þór
  • Grótta eða ÍBV – HK eða Valur
  • ÍR eða Haukar – Fram
  • Sextán liða úrslit Coca Cola bikars karlaa:
  • Vængir Júpiters – KA
  • Grótta – Stjarnan
  • FH – Haukar eða Selfoss
  • Afturelding – ÍBV
  •  Kría – ÍR
  • HK – Fram
  • Víkingur – Valur
  • Mílan – Fjölnir
  • Átta liða úrslit Coca Cola bikars karla:
  • Kría eða ÍR – HK eða Fram
  • Grótta eða Stjarnan – Vængir Júpiters eða KA
  • Afturelding eða ÍBV – Mílan eða Fjölnir
  • Víkingur eða Valur – FH eða Haukar eða Selfoss