Ráðning í stöðu hafnarstjóri Vestmannaeyjahafnar var til umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Fulltrúar H og E lista hófu umræðuna með tveimur bókunum. Þar kemur fram að staða hafnarstjóra Vestmannaeyjahafnar var auglýst laus til umsóknar í byrjun febrúar sl. fimm sóttu um starfið.

Leitað var ráðgjafar Hagvangs við úrvinnslu og mat umsókna. Að mati á umsóknum komu fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og mannauðsstjóri. Faglega var staðið að ráðningarferlinu og þeir sem komu að því hafa allir reynslu af ráðningum.

Ítarlegt mat átti sér stað á umsækjendum, m.a. starfsviðtöl, leitað var umsagna, hluti umsækjenda var beðinn um að kynna sig, framtíðarsýn hafnarinnar o.fl. Jafnframt var lagt fyrir hluta umsækjenda persónuleikamat. Stuðst var við matsskema þar sem hæfnisþáttum var gefið ákveðið vægi og umsækjendur metnir út frá því.

Niðurstöður matsins voru þær að Dóra Björk Gunnarsdóttir var metin hæfust af umsækjendum.

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs þann 16. mars sl., kynnti sérfræðingur Hagvangs ráðningarferlið, matið og niðurstöðu matsins fyrir ráðinu. Í framhaldi ákvað framkvæmda- og hafnarráð að ráða Dóru Björk í stöðu hafnarstjóra.

Fundi framkvæmda- og hafnarráðs var seinkað einu sinni á tímabilinu vegna þess að enn var verið að vinna í ráðningarferlinu. Engin nefndarmaður gerði athugasemd við það. Engin ósk kom frá fulltrúum minnihlutans í ráðinu frá því að starfið var auglýst; um aðkomu eða breytingu á ferlinu, um lengri tíma, um betri yfirferð, um fleiri gögn eða frest til að ráða í starfið.
Athugasemdir komu fram eftir að það var ljóst hver yrði ráðinn hafnarstjóri.

Á þessu kjörtímabili hefur meðal annars verið ráðið í stöðu skólastjóra tónlistarskólans, fjármálastjóra og mannauðsstjóra. Faglegt ferli hefur verið við allar þessar ráðningar sem byggir á verklagsreglum um ráðningarferli Vestmannaeyjabæjar, sama faglega ferli og viðhaft var við ráðningu á hafnarstjóra. Það skýtur því skökku við að fulltrúar minnihlutans í ráðinu og í bæjarstjórn gagnrýni vinnu starfsfólks og ráðningaskrifstofu með þessum hætti þegar engin athugasemd kom við ráðningum sem nefndar eru hér að ofan.

Málsmeðferðin er því ótrúverðug og óheppileg
Fulltrúar D-lista svöruðu með eftirfarandi bókunum: Samkvæmt reglugerð um Vestmannaeyjahöfn á hafnarstjórn að skipa hafnarstjóra. Þrátt fyrir það hefur hafnarstjórn Vestmannaeyjahafnar ekki farið með það verkefni og tók ekki ákvörðun um að auglýsa starfið eða fela ráðningarskrifstofu það verkefni. Hæfniskröfur hafnarstjóra voru útlistaðar í minnisblaði starfshóps sem fjallaði um framtíðarskipulag hafnarinnar og samþykkt var í febrúar á síðasta ári. Þegar starf hafnarstjóra var auglýst af Vestmannaeyjabæ var fallið frá þeim hæfniskröfum um starf hafnarstjóra sem búið var að samþykkja í bæjarstjórn. Auglýstum hæfniskröfum var síðan skipt upp í kvarða þar sem hver kvarði er metin eftir huglægum hlutföllum. T.d. er reynsla af hafnarstjórn lítið metin á meðan háskólamenntun hafði hátt vægi. Hafnarstjórn kom aldrei að ákvörðun um þessi matshlutföll á hæfniskröfum þrátt fyrir að eiga reglum samkvæmt að skipa hafnarstjóra. Málsmeðferðin er því ótrúverðug og óheppileg, þar sem vægið var ekki kynnt fyrirfram og í raun vikið frá samþykktum hæfniskröfum starfshóps um skipulag hafnarinnar.

Hvergi hefur komið fram gagnrýni á starfsfólk sveitarfélagsins. Hins vegar er hér að koma fram gagnrýni á pólitíska fulltrúa H- og E- lista. Það að fara gegn samþykktum og breyta hæfniskröfum er ekki faglegur og skýr verkferill.

Farið eftir verklagsreglum
Þessu var svarað með bókun frá fulltrúum E og H lista:Við ítrekum að farið var eftir verklagsreglum í ráðningaferlinu og Hafnarstjórn sinnti sínu lögboðna hlutverki og réð hafnarstjóra eins og fram kemur í fundargerð.

Hæfniskröfum í auglýsingu breytt
Þar með var málinu ekki lokið því fulltrúar D lista bókuðu þá, Hafnarstjórn ákveður ekki að auglýsa starfið líkt og hafnarlög kveða á um. Hæfniskröfur í auglýsingu er breytt frá vinnu ráðsins. Ef meirihlutinn kallar þetta að fara eftir verklagsreglum er það miður.