Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 22. febrúar 2024 að auglýsa breytingu á deiliskipulag Íþróttasvæði við Hástein, skv. Skipulagslögum nr. 123/2010. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir nýjum byggingareit, Þ3, að stærð 15x60m á allt að tveim hæðum fyrir búningsklefa og skrifstofurými norðan við fjölnota íþróttasal.
Skipulagsgögnin eru til sýnis í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja, á skipulagsgátt á vefsíðu sveitarfélagsins og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 18. apríl 2024 í afgreiðslu Ráðhúss eða á netfangið [email protected].