ÍBV stelpurnar mæta liði Stjörnunnar á heimavelli í dag í keppni um laust sæti í fjöguraliða úrslitum Íslandsmótsins. Liðin enduðu í fjórða og fimmta sæti í Olísdeild kvenna og því ljóst að allt stefnir í spennandi viðureign. Flautað verður til leiks klukkan 13:30 í íþróttamiðstöðinni.