Það stendur mikið til á Hásteinsvelli í dag þegar ÍBV og Kórdrengir mætast á Hásteinsvelli klukkan 18:00. Fírað verður upp í grillinu og kynntur verður til leiks hinn eini sanni ÍBV borgari sem vert er að smakka, það verða einnig kaldir drykkir til sölu þannig þið þurfið engar áhyggjur að hafa af kvöldmatnum.