Bæjarstjóri fór á fundi sínum í dag yfir stöðu viðræðna við heilbrigðisráðuneytið um húsnæði Hraunbúða. Uppgjör á yfirfærslu Hraunbúða til HSU stendur yfir með fulltrúum stofnunarinnar. Viðræður við heilbrigðisráðuneytisins hafa lítið þokast. Samningsvilji heilbrigðisráðuneytisins er lítill og stendur upp á ráðuneytið að gera drög að leigusamningi um Hraunbúðir, eins og lofað var fyrir tveimur vikum síðan.