Knattspyrnulið ÍBV hefur fengið Ísak Andra Sigurgeirsson lánaðan frá Stjörnunni. Hann verður hjá liðinu út tímabilið í Lengjudeildinni. “Ekki nóg með það að Ísak sé gríðarlega efnilegur kantmaður, sem hefur spilað með U-16 Íslands, þá er hann ættaður úr Eyjum og þekkir hér vel til. Það er mikil ánægja hjá knattspyrnuráði og þjálfurum með að Ísak sé kominn til ÍBV og þökkum við Stjörnunni lánið,” segir í tilkynningu á heimasíðu ÍBV.