Á morgun er hópferð á leik Fjölnis og ÍBV í Lengjudeild karla. Með sigri tryggir ÍBV sér sæti í efstu deild á ný. ÍBV ætlar að bjóða stuðningsmönnum í rútu og Herjólf án endurgjalds. Farið verður með Herjólfi klukkan 12:00 og heim 22.15. Hægt er að skrá sig hér á facebook eða senda nafn og kennitölu á [email protected] fyrir 21.00 en skráningu lýkur í kvöld.