Miðvikudaginn 8. desember hafa 750 manns verið boðaðir í bólusetningu vegna covid. Eru það flestir einstaklingar sem boðaðir eru í örvunarskammt og ættu einstaklingar sem bólusettir voru fyrir 6 mánuðum eða lengur núna að hafa fengið boð.  Bólusett verður í Íþróttahúsinu

OPINN TÍMI verður klukkan 15 er og er sá tími ætlaður fyrir einstaklinga sem ekki teljast fullbólusettir,   það hafa enga bólusetningu þegið eða 1 af pfizer  eða Astrazenica eða hafa verið fullbólusettir fyrir meira en 6 mánuðum en ekki fengið boð í örvunarskammt.

Althugið að hafi fólk fengið covid –smit á síðast liðnum 6 mánuðum á það ekki að mæta.

21. desember er næsta bólusetning gegn covid 19 áætluð

Þeir sem ekki hafa fengið boð en telja sig eiga að mæta er bent á að hafa samband við heilsugæslu , sími 4322500.   Einnig eru þeir sem ekki eru fullbólusettir beðnir um að hafa samband og láta skrá sig.

Inflúensubólusetningar
Við veljum hvetja fólk til að mæta í inflúensubólusetningar,  sérstaklega einstaklinga yfir 60 ára og einnig þá sem eru með undirliggjandi áhættuþætti.  Svo sem hjarta og lungnasjúkdóma,  veiklað ónæmiskerfi vegna sjúkdóma eða lyfja og sykursýki.  Hægt er að mæta á heilsugæsluna kl 14 – 15 á morgun eða láta skrá sig sig á öðrum tíma.