ÍBV strákarnir taka á móti Víkingum í kvöld klukkan 18:00. ÍBV er fyrir umferðina með 15 stig í 3. sæti deildarinnar en Víkingar í því næst neðsta með 2 stig. ÍBV hefur átt í erfiðleikum með lið í neðri hluta deildarinnar í síðustu tveimur leikjum og því mikilvægt að mæta tilbúnir til leiks í dag. Leikurinn verður í beinni útsendingu ÍBV-TV á youtube.