Andra Rúnar Bjarnason hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍBV og flytur hann til Eyja í janúar. Hann lék síðast á Íslandi 2017 og jafnaði þá markametið í efstu deild. Síðan þá hefur hann söðlað um erlendis en hann kemur til ÍBV frá Esbjerg.

“Þessi öflugi Bolvíkingur mun sannarlega styrkja ÍBV í baráttunni í efstu deild og hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum,” segir meðal annars í tilkynningu frá ÍBV.