Fótboltaskóli ÍBV fer fram á milli jóla og nýárs en það verða þjálfarar yngri flokka og leikmenn meistaraflokka sem sjá um skólann. Æfingar fara allar fram í Herjólfshöllinni og lýkur síðustu æfingu hvors hóps á pizzaveislu í Týsheimilinu.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari meistaraflokks karla og fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins verður gestaþjálfari í fótboltaskólanum.
Fyrri hópur: 6. og 7. flokkur karla og kvenna – frá klukkan 10:00 – 12:00 alla dagana
Seinni hópur: 4. og 5. flokkur karla og kvenna – frá klukkan 12:30 – 14:30 alla dagana
Verð í skólann í ár er 1.000 kr. og fer skráning fram á [email protected]. Í skráningu verður að taka fram nafn og kennitölu iðkanda.