Þrettándablað ÍBV fyrir árið 2022 er komið út og er hægt að nálgast það með því að smella hér.

Blaðið inniheldur viðtöl við besta leikmann ÍBV í knattspyrnu karla árið 2021, efnilegasta leikmann meistaraflokks kvenna í handknattleik og einn af atvinnumönnum félagsins sem leikur í Þýskalandi. Ásamt því er hugvekja frá sóknarpresti Landakirkju, annáll frá framkvæmdastjóra félagsins auk frábærra mynda frá Adda í London af Þrettándagleði síðustu ára.