Í ljósi samkomutakmarkana mun goslokanefnd standa fyrir minningarstund í Landakirkju þann 23. janúar næstkomandi, rétt eins og í fyrra.  Dagskráin verður með svipuðu sniði, þ.e. fluttar verða hugvekjur og eyjalög sungin og spiluð.  Minningarstundin hefst kl. 20:00 á sunnudagskvöld og verður hægt að nálgast hlekk á hana á vef Vestmannaeyjabæjar, samfélagsmiðlum bæjarins og á eyjamiðlunum.  Við hvetjum alla Eyjamenn og Eyjavini að sameinast í fallegri stund á sunnudagskvöldið klukkan 20:00.