Flugfélagið Ernir mun, í samráði við Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum, fjölga flugferðum um eina ferð í viku til og frá Vestmannaeyju frá og með 1. febrúar. Flogið verður því þrjá daga í viku, í stað tveggja, til og frá Eyjum, þ.e. mándaga, þriðjudaga og föstudaga. Upplýsingar um flugáætlun félagsins er að finna á heimasíðu Flugfélagsins Ernis ernir.is.

Flugfélagið Ernir vonast til að hægt verði að byggja upp flugsamgöngur að nýju til Vestmannaeyja og auka flugið enn frekar. Hlakkar félagið mikið til áframhaldandi samvinnu við Vestmannaeyinga um uppyggingu flugsamgangna til frambúðar.