Foreign Monkeys hafa sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið Those That Suffer og er það að finna á Spotify og öðrum helstu tónlistarveitum.

Lagið var hljóðritað ásamt fjölda annara nýrra laga í Álsey, einni af úteyjum Vestmannaeyja síðsumar 2020 og var ferlið kvikmyndað í bak og fyrir. Á næstu dögum kemur svo út myndband við lagið sem gefur ferðinni út í Álsey góð skil.

Hér má hlusta á lagið
https://open.spotify.com/track/27gVWJC7SPEdbFbWOtYBns?si=e393708f475840b7