Í dag er 740 einstaklingur í einangrun vegna COVID-19 í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og hefur fækkað nokkuð síðustu daga. Í Vestmannaeyjum aftur á móti eru 152 einstaklingar í einangrun og hefur þeim fjölgað síðustu daga. En alls eru 127 í sóttkví í Vestmannaeyjum.

Þetta kemur fram í tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.