Það er að síga á seinnihlutann á handboltatímabilinu og styttast í úrslitakeppni. Í kvöld fara fram næstsíðasti heimaleikur kvennaliðsins og sá síðasti hjá karlaliðinu fyrir úrslitakeppni. Kvennaliðið byrjar klukkan 17.30 þegar stelpurnar taka á móti botnliði Aftureldingar.

Klukkan 19.30 verður flautað til leiks ÍBV og Gróttu í Olís-deild karla. Gróttustrákar sitja í 9. sæti deildarinnar og eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninni og því ljóst að þeir munu mæta í leikinn af fullum krafti.

Báðir leikir verða í beinni útsendingu á ÍBV-TV