Það er óhætt að segja að það sé komið að hápunkti tímabilsins í handboltanum því í dag fer fram fyrsti leikur karlaliðsins ÍBV í 8-liða úrslita einvíginu gegn Stjörnunni í Vestmannaeyjum kl.17:00. Liðin mætast aftur á sunnudag í Garðabæ en það lið sem er fyrst til að vinna tvo leiki kemst áfram í undan úrslit. Ef til þarf oddaleik verður hann leikinn í Vestmannaeyjum miðvikudaginn næstkomandi.
Fram kemur í tilkynningu frá ÍBV að miðasala er hafin á miðasöluappinu Stubbur. Krókódílakortin gilda ekki þegar komið er í úrslitakeppni. Fólk er hvatt til þess að ganga frá miðakaupum þar áður en komið er í hús, til að forðast biðraðir.