Í kvöld hefst úrslitakeppni Olísdeildar kvenna þegar liðin sem höfnuðu í þriðja til sjötta sæti mætast en liðin sem hrepptu tvö efstu sætin, Fram og Valur, sitja hjá.

Í Vestmannaeyjum mætast ÍBV og Stjarnan klukkan 19:40 og í KA-heimilinu Íslandsmeistarar KA/Þórs og Haukar viðureignin hefst klukkan 18. Liðin mætast öðru sinni um helgina í TM-höllinni í Garðabæ og á Ásvöllum í Hafnafirði.

Í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna þarf að vinna tvo leiki til að öðlast sæti í undanúrslitum þegar Fram og Valur mæta til leiks.