Það viðrar vel á okkur í Eyjum þessa helgina og það er alveg upplagt veður til útivistar; hæg breytileg átt eða hafgola og léttskýjað. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands og ekkert lát er á góðviðrinu, en á vefnum vedur.is kemur fram að það muni hlýna enn hjá okkur á morgun, sunnudag og hiti á suðurlandi verði á bilinu 10-20 stig á mánudag. Það má búast við skúrum á fimmtudag, en ekki á að kólna almennilega fyrr en í lok vikunnar.