Leik KFS og Vængja Júpíters hefur verið flýtt og mun leikurinn fara fram í dag kl. 18 við Egilshöll. Áður hafði leikurinn verið tímasettur á morgun, sunnudag.

Liðin leika í 3. deildinni og er KFS í 8. sæti en Vængir Júpíters í því 10. Má því búast við fjörugum leik.