Eftirfarandi breytingar á umferðarskipulagi í Vestmannaeyjum taka gildi kl. 13:00 föstudaginn 29. júlí nk. og gilda til kl. 19:00 mánudaginn 1. ágúst nk.:

  • Hámarkshraði á Dalvegi verður lækkaður úr 50 km/klst. í 15 km/klst. og framúrakstur bannaður.
  • Umferð um Dalveg verður einungis leyfð til að leggja í bifreiðarstæði og til að skila og sækja fólk.
  • Akstur stærri ökutækja verður bannaður um Dalveg nema fyrir ökutæki til fólks- eða vöruflutninga á vegum þjóðhátíðarnefndar.
  • Hámarkshraði á Hamarsvegi frá Áshamri að Brekkugötu verður lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst.
  • Bifreiðastöður verða einungis heimilar á sér merktum bifreiðarstæðum. Búast má við að bifreiðar, sem lagt verður utan merktra bifreiðastæða verði fjarlægðar og teknar í vörslu lögreglu á kostnað eiganda

    Þar sem gera má ráð fyrir að bifreiðarstæði verði mjög takmörkuð við Dalveg er þjóðhátíðargestum bent á sérstaklega merkt bifreiðarstæði í nágrenni við Herjólfsdal á öðrum merktum svæðum sem auglýst hafa verið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum.