Aðalstjórn ÍBV íþróttafélags hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu.

ÍBV íþróttafélag mun halda framhalds-aðalfund þann 31. ágúst næstkomandi kl. 20:00 í Týsheimilinu.

Kemur fram að tekin verða fyrir mál sem frestað var á fyrri fundi:

  • Kosning formanns
  • kosning stjórnar
  • kosning í fulltrúaráð
  • kosning tveggja skoðunarmanna
  • önnur mál

Framboð til stjórnar þurfi að berast framkvæmdastjóra félagsins minnst 10 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Tilkynning um framboð skulu því hafa borist fyrir miðnætti sunnudaginn 21. ágúst á [email protected]