Á þessum tíma í fyrra var búið að skrá og vigta fleiri en 5.000 pysjur, tímabilið hafði náð hámarki 13. ágúst og var því í raun alveg búið áður en september rann upp.

Nú ber annað við, en 57 pysjur hafa verið skráðar á vefinn lundi.is og þar af hafa 33 verið vigtaðar. Meðalþyngd pysjanna í ár er 253 grömm, en sú þyngsta var 300 grömm og sú léttasta 175 grömm.

Á vefnum lundi.is kemur einnig fram hvar mestar líkur eru á því að finna pysjurnar en flestar finnast þær á svæðum sem eru nálægt lundabyggðunum.  Stór lundabyggð er t.d. í Heimakletti og því finnst alltaf fjöldi pysja úti á Eiði og við höfnina. Einnig er lundabyggð í Dalfjalli og þaðan fljúga pysjurnar í Dalinn, á golfvöllinn og í vesturbæinn. Einnig hefur veðrið nokkur áhrif og eru t.d. fleiri pysjur að finnast ofar í bænum ef það er hvöss norðanátt.

Mynd: lundi.is

Best er að sleppa pysjunum við sjó og eru tilgreindir nokkrir af bestu stöðunum á vefsíðunni lundi.is

Mynd: lundi.is