15. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu heldur áfram að rúlla í dag, en ÍBV stelpurnar okkar heimsækja Þór/KA fyrir norðan.

Norðanstelpur eiga mikið undir og eru í fallhættu eftir úrslit leiks Aftureldingar og KR í gær, þar sem Afturelding fór með sigur af hólmi. Þór/KA er í 8. sæti með 13 stig.

ÍBV er í 6. sæti með 22 stig og gerði jafntefli við Breiðablik í síðasta leik við erfiðar aðstæður á Hásteinsvelli.

Búast má við hörkuleik, en hann hefst kl. 16:45 á Saltpay vellinum fyrir norðan.

Þórhildur í baráttu um boltann í leiknum við Breiðablik síðustu helgi. Mynd: Sigfús Gunnar.