Í dag var dregið í 3.umferð í Evrópubikar kvenna, en kvennalið ÍBV tryggði sér farmiðann þangað í gær með samanlögðum sigri úr tveimur leikjum gegn O.F.N. Ionias. Stelpurnar mæta félagsliðinu Madeira frá Portúgal í 32-liða úrslitum.

Ef leikirnir fara fram heima og að heiman þá á ÍBV heimaleik helgina 3. og 4. desember og svo á útivelli viku síðar.