Kvennalið ÍBV og HK mætast í Vestmannaeyjum í dag klukkan 14:00. Lið HK situr á botni deildarinnar en ÍBV í því þriðja. Þetta er síðasti deildarleikurinn hjá stelpunum á árinu en þær eru þó ekki komnar í jólafrí því liðið mætir KA/Þór í bikarnum 13. desember klukkan 17:30 í leik sem hefur verið frestað oftar en góðu hófi gegnir.