Hið árlega síldarkvöld ÍBV verður haldið í kvöld kl. 18.30 á Háaloftinu í Höllinni. Boðið verður upp á ýmis konar salöt sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Einnig verður boðið upp á eðal rúgbrauð frá Eyjabakarí. Verð 2900 kr. og er hægt að panta fyrir hópa á [email protected].

Við höfðum samband við síldaráhugamanninn Daníel Geir Moritz og spurðum hann út í kvöldið og þennan mikla áhuga hans. “Ég hef alltaf verið mikill síldarkarl og er síldin vinsæl í föðurættinni minni. Frændi minn, Halli Kalla Jör, var brautryðjandi í mareneringu á síld hjá Síldarvinnslunni og svo tók föðurbróðir minn við og pabbi hefur líka haft puttana í þessu. Það eru alls konar salöt sem maður hefur étið um ævina og alltaf líkað vel.”

Hann sagði að gestir mættu eiga von á veglegri veislu. “Já, það er óhætt að segja að það verði sérstakt á boðstólnum í ár. Umræddasta salatið frá því 2019 mun snúa aftur en ég vil ekki uppljóstra hér hvað er í því.” Hvaðan kemur þessu síld? Í ár verður boðið upp á síld frá VSV og Ísfélaginu eins og áður en einnig verður síld frá Síldarvinnslunni í ár.

Daníel segir þessa samkomu alltaf hafa vakið mikla lukku. “Það er nú gaman að segja frá því að fyrst þegar þetta var haldið hjá okkur sagði einn við mig í lok kvölds að það væru mikil meðmæli með kvöldinu að hann hafi aldrei borðað síld, eða verið hrifinn af henni, en sé nú á heimleið pakksaddur! Ég hvet því alla sem vilja að koma og prófa.”