Nú á fimmtudag, 22. des, verða Desembertónleikar ÍBV. Í ár mætir Stuðlabandið með alvöru jólastemningu með geggjuðum lögum, alvöru sögum og því sem þarf til að koma fólki í stuð fyrir jólin. Miðaverð er 4900 kr á Tix.is og 5.900 kr við hurð.

Fyrr um daginn, eða 17.00, verða fjölskyldutónleikar og er frítt inn á þá! Tilvalið fyrir fjölluna að skella sér og koma krökkunum í gott stuð einnig.

Herlegheitin fara fram í Höllinni og hvetjum við fólk til að kaupa miða tímanlega til að auðvelda skipulagningu viðburðarins.