Uppfært kl. 10:02
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa fór fram í gær. Fyrir fundinum lágu þrjú mál en öll voru þau umsóknir á lóðum í Goðahrauni. Bragi Magnússon fyrir hönd DVG fasteignafélags ehf. sótti um lóðir við Goðahraun 3, 5 og 22. Eigendur DVG fasteignafélags ehf. eru Viðar Sigurjónsson, Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir og Gylfi Sigurjónsson. Í dag standa fimm hús við gamla suðurbotnlangann í götunni en öll voru þessi hús byggð snemma eða um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Við nyrðri botnlangann hefur öllum sjö íbúðarlóðum verið úthlutað og eru framkvæmdir hafnar á þeim öllum en sá stóð auður allt til ársins 2017.