Skipulag við Friðarhöfn var til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarráðs í liðinni viku. Starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs kynntu fyrirhugaðar framkvæmdir við Friðarhöfn. Þar á meðal lokanir fyrir almenna umferð inn á vinnusvæði hafnar.

Ráðið þakkar í niðurstöðu sinni fyrir kynninguna og er hlynnt fyrirhuguðum framkvæmdum og breyttu umferðarskipulagi.

Botn-Gatnagerð_Lokun á almenna umferð á hafnarsvæði.pdf