Starfslaun bæjarlistamanns 2023

0
Starfslaun bæjarlistamanns 2023
Karlakór Vestmannaeyja, bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2018

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2023. Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum. Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2023.

Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. maí nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhúsið, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir með tölvupósti  ( [email protected] ) eða í síma 488 2000.