Tilkynnt var um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2023 í Eldheimum í dag. Skólalúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur lög áður en Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs mun tilkynnti viðstöddum um valið. En það var Kitty Kovács organisti og kórstjóri sem hlaut viðurkenninguna bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2023.

Njáll sagði bæjarráð hafa staðið frammi fyrir erfiðu vali þegar farið var yfir innsendar umsóknir og ábendingar sem voru alls tólf. „Vil ég þakka öllum sem sóttu um eða sendu ábendingu fyrir áhugann. Áfram er gróska í listalífinu í Vestmannaeyjum og það er svo sannanlega ánægjulegt. Endanleg ákvörðun var tekin eftir góðar umræður í bæjarráði og eftir þær var ráðið, sem fyrr, sammála um útnefninguna.“