Nú þegar 88 dagar eru til þjóðhátíðar þá fjölgar í hópi þeirra listamanna sem fram koma á hátíðinni en þjóðhátíðarnefnd greindi frá því í tilkynningu rétt í þessu að XXX Rottweiler, Una Torfa og Jón Ólafsson ásamt Eyfa, Birni Jörundi og Daníel Ágústi koma fram á stóra sviðinu í Herjólfsdal á Þjóðhátíð í ár. Áður höfðu verið kynnt til leiks þau Bríet, Friðrik Dór, Stjórnin og Emmsjé Gauti – sem flytur Þjóðhátíðarlagið í ár en það verður frumflutt í byrjun júní.