Þriðji úrslitaleikur ÍBV og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla fer fram í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.15. Mikið verður um dýrðir í kringum leikinn enda ekki útilokað að úrslit ráðist í kapphlaupinu um Íslandsbikarinn.

ÍBV stendur vel að vígi eftir tvo sigurleiki, 33:27 og 29:26. Haukar hafa ekki unnið leik til þessa og þurfa á sigri að halda til þess að koma í veg fyrir sigurhátíð á fjölum íþróttamiðstöðvarinnar að leik loknum.

Vilmar Þór Bjarnason framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar segist aldrei hafa séð aðra eins forsölu á leik. “Það styttist í að það verði uppselt, við höfum ekki séð svona áhuga áður.” Vilmar og félagar haf brugðið á það ráð að fá lánaða auka stúku frá Þorlákshöfn til þess að koma að fleiri áhorfendum. “Við náum að koma um 240 manns aukalega með þessri stúku, þannig að það stefnir allt í fjölmennasta handboltaleik sem farið hefur fram í Vestmannaeyjum”.

Miðasala er í fullum gangi. “Við viljum hvetja fólk til að tryggja sér miða sem fyrst á miðasöluappinu Stubbur. Á appinu er líka hægt að kaupa veitingar fyrirfram. Hamborgarar, bjór og gos til sölu þar. Í upphituninni verður sér “Stubbs-afgreiðsla” til þess að flýta fyrir og minnka raðir. Við hvetjum því fólk til að skoða það!”

“Við hefjum upphitun kl.17:00, Leó Snær spilar og syngur, keyrir alvöru Eyja-stemningu í gang. Við opnum svo inn í sal 18:30, 45 mínútum fyrir leik. Það liggur ljóst fyrir að það verður ansi fjölmennt og fólk því hvatt til að mæta fyrr en seinna í hús,” sagði Vilmar að lokum.
Sjálfboðaliðar vinna við að koma stúkunni inn í hús.